Um MedicAlert
Aðild að MedicAlert er greidd með 7.000 kr. stofngjaldi (einfalt stálmerki og spjald innifalið). ÁRGJALD ER KR. 2,000.-.
ATH Læknir þarf að staðfesta með uppáskrift eða vottorði um að viðkomandi sjúkdómar séu réttir áður en umsók er skilað á skrifstofu.
Áríðandi er að merkisberi láti vita um allar breytingar svo upplýsingar séu ávallt réttar. Í gagnagrunninum eru ítarlegri upplýsingar en eru grafnar í merkið.
MedicAlert er til húsa í Hlíðasmára 14 Kópavogi. Netfang medicalert@medicalert.is Afgreiðslutími er virka daga kl. 9 - 15.
MedicAlert eru alþjóðleg öryggissamtök, rekin án ágóða, sem veita upplýsingar um merkisbera á neyðarstundu og hafa starfað hér á landi í aldarfjórðung. Í Íslandsdeildinni, eru yfir 6000 merkisberar, en höfuðstöðvarnar í Californíu þjóna milljónum merkisberum í yfir 40 löndum.
Um er að ræða þríþætt kerfi: merki úr málmi, plastspjald með ákveðnum upplýsingum auk tölvuskrár.
- Merkið er borið í keðju um háls eða úlnlið.
- Plastspjaldið, sem er í kreditkortastærð fyrir veski, er með fyllri upplýsingum.
- Loks eru ýtarlegastar upplýsingar á tölvuskrá, sem er í vörslu Slysa- og bráðadeildar Landspítalans, en þar er gjaldfrjáls sólarhrings vaktþjónusta fyrir neyðarnúmer MedicAlert.
Á merkið eru skráð 3 atriði:
- Símanúmer vaktstöðvar á Íslandi, sem hringja má í allstaðar að úr heiminum án endurgjalds. Sjúkdómsgreining eða áríðandi upplýsingar um viðkomandi og að lokum: Persónunúmer, sem veitir aðgang að upplýsingum á tölvuskrá Slysa- og bráðadeildar .

Þegar læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraflutningamenn, lögregluþjónar og aðrir sem koma að sjúklingi í neyð geta þeir með aðstoð MedicAlert fengið lífsnauðsynlegar upplýsingar á svipstundu, sem geta gert útslagið um gang mála í meðferðinni. Oft segja áletranir á merkið allt sem þarf, en einnig geta framangreindir aðilar hringt í neyðarnúmerið, gert grein fyrir sér og síðan fengið nánari upplýsingar, svo sem um áríðandi lyfjanotkun.
Dæmi um sjúkdóma: Flogaveiki, Hjartasjúkdómur, Sykursýki, Blæðingarsjúkdómur, Bráðaofnæmi, Astma, Alzheimer og Einhvefa.